Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Glæpakvenndi

Gamlar konur eru stórhættulegar, tala nú ekki um þegar þær aka bíl. Og aumingja mennirnir, guð blessi þá.
mbl.is Eldri konur myrtu útigangsmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki var það Pepsi

Það er gott að Oliver sé búinn að fá frelsið aftur, örugglega ömurlegt að vera rænt og frábært að snáðinn fékk kók.
mbl.is „Afi, löggan gaf mér kók"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimskyr

Loksins loksins - hann er tilbúinn!!! Diskurinn með hljómsveitinni Heimskyr sem ég og Ragnar Ólason skipum, 12 gæða lög sungin af okkur auk þess sem Eyþór Ingi úr Bandinu Hans Bubba syngur eitt lag, og verður diskurinn gefinn út á tónlist.is næstu daga. við erum komnir með blog síðu Hér og þar er hægt að hlusta á eitt lag og skora ég á sem flesta að skrá sig sem bloggvini hjá okkur, einnig er myspace síða komin í loftið og er slóðin á hana Hér

fylgist með frá upphafi


Snilld

Frábært að Snæfell hafi unnið þessa rimmu, og ég vona að ÍR slái Keflavík út svo að loksins verði suðurnesjaliðalaust úrslitaeinvígi, það er eitthvað við liðin frá suðurnesjum sem fer svakalega í taugarnar á mér.
mbl.is Snæfell í úrslit eftir frábæran endasprett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Léttur sigur

jæja leikurinn búinn og ég bjóst við meira frá gestaliðnu, einum of létt fyrir mína menn þó svo að þeir hafi fengið á sig mark í lokin.

Það var eins og leikmenn Blackburn hefðu enga trú að þeir gætu fengið eitthvað út úr þessum leik, misstu boltann jafn óðum og þeir náðu honum og voru heppnir að fá á sig a.m.k. 2 víti, en það skipti engu - góður sigur Liverpool í dag og 4. sætið nokkuð öruggt - og kannski er séns á því 3. 


mbl.is Liverpool lagði Blackburn, 3:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slakt

Horfði á Söngkeppni framhaldsskólana í gærkvöld, því undanfarin ár hefur sú keppni verið góð en svo var ekki í gær.

Byrjum á drengnum sem kynnti þetta allt saman, hann náði aldrei að kynna einn einasta atriði almennilega, svo sem ekkert að því að vera með stæla og segja "jéjéjé" vera voða hress - drengurinn var bara ekki að höndla það að vera kynnir þarna.

Flutningurinn á lögunum var til fyrirmyndar hjá hljómsveitinni, og oft þurftu þeir að elta söngvarann sem söng ýmist of hratt eða hægði töluvert á lögunum, sjálfur hef ég reynslu af slíku og það lítur alltaf þannig út að þetta sé allt trommaranum að kenna.

Og þegar úrslitin voru tilkynnt fannst mér eins og það ætti að hespa þessu af og sá sem sigraði fékk varla klapp að launum.

frábær keppni en samt eitthvað svo glatað 


mbl.is Verslósigur í söngkeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mergjað!!

Leikur Liverpool og Arsenal var hreint út sagt magnaður, en í byrjun hélt ég hreinlega að mínir menn hefðu gleymt að mæta til leiks, slíkur var vandræðagangurinn á þeim - Arsenal komst í 1-0 og ég hugsaði bara "guð minn góður" erum við að fara að tapa leiknum baráttulaust?

En svo kom sólin upp og Hyypia skoraði frábært mark með skalla eftir hornspyrnu, ekki oft sem það gerist, en það er jú sama hvaðan gott kemurGrin

1-1 í hléi.

Liverpool menn komu mikið ákveðnari í seinni hálfleik og voru með sókn Arsenal í vasanum, og ég varð vonbetri um að ná að skora.

Þá kemur það, Torres með glæsilegt mark og staðan orðin 2-1 og um 20 mín eftir. 

Svo kemur einhver stráklingur og hleypur upp völlinn og sendir fyrir markið og staðan orðin 2-2 og Arsenal allt í einu með betri stöðu.

Ég sá endalokin á leiknum engan vegin fyrir mér, Liverpool fékk víti sem meistari Gerrard skoraði úr af miklu öryggi 3-2 og Arsenal nægði að jafna til að komast áfram og settu allan kraft í það og þá má ekkert klikka og ég að fara á taugum - rúmlega!

Kuyt sparkar fram, Babel eins og raketta fram völlinn,  og smellir fjórða markinu  4-2 og ég orðinn nokkuð rólegur.

Frábær leikur sem minnti mig aðeins á úrslitaleikinn í Istanbul 2005 og enn fáum við Chelsea í undanúrslitum, það verður slagur! 


mbl.is Liverpool og Chelsea sigruðu og mætast í undanúrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helgin sem leið

Fór í höfuðstaðinn á föstudag, lögðum af stað í bítið og vorum kominn um kl 14, fórum þá í bláa lónið að slaka á - samt allt of dýrt að fara þangað en vegna sjúkdóms míns er það nauðsynlegt, reyni að fara alltaf þegar ég fer suður, og um kvöldið vorum við gestir í sjónvarpssal á Bandinu hans Bubba að hvetja Eyþór okkar áfram og stóð hann sig frábærlega eins og við var að búast.

Skemmtilegt að vera staddur þarna og fá allt gjörsamlega beint í æð og engan veginn hægt að líkja þessu saman við að horfa á þetta heima í stofu, bandið mikið kraftmeira og hrárra og mikill hiti, magnað hvað þetta rými er lítið miðað við hvað það virkar mikið stærra í sjónvarpinu, Páll Rósinkrans var gestadómari og hefði hann verið að keppa þarna er ég viss um að hann hefði ekki fengið góða umsögn.

Svo á laugardaginn fór ég í golf - það var gaman.

 

Svo í tilefni að bloggvinur minn og snillingurinn Eyþór Árnason kommenteraði á þessa færslu, er ekki úr vegi að minnast aðeins á hans þátt í bandinu hans bubba. Eyþór er maðurinn!! Stjórnar stemmingunni og sér um að allir séu í svaka stuði, sérstaklega skemmtilegt að rétt áður en útsendingin hófst, gekk hann á milli tökumannanna og annara starfsmanna við þáttinn og gaf þeim "high five" eða fimmu - algjör snilld að fylgjast með honum, hann stjórnaði þessu alveg, hvenar við áttum að klappa, klappa standandi, ekki klappa :)

Veit ekki alveg starfsheitið á honum, sviðsstjóri  held ég samt, Eyþór þú kannski segir mér frá því bara.

Svo var náttúrulega annar bloggvinur minn þarna, Jakob Smári Magnússon bassaleikari, ég efast um að til sé svalari maður og hafði ég gaman af því að fylgjast með honum með allar svölu pósurnar  með bassann um sig miðjan. 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband