Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Stiklað á stóru..

búið að vera þó nokkuð um að vera hérna í torginu síðustu daga og ekki laust við að húsbóndinn sé ögn búinn á því eftir þetta - eins og ég sagði í síðustu færslu tók ég mig til og reif teppið af gólfinu og fékk karl faðir minn til að leggja með mér, hann mætti galvaskur á laugardaginn en þá var ég rétt ný farinn út til að keppa í bændaglímu golfklúbbsins sem gekk bara vel, þar sem ég sigraði andstæðing minn nokkuð örugglega (vann með 4 holu mun) keppt var í holukeppni - svo þegar ég kom heim blautur og þreyttur var pabbi nýfarinn og búinn að leggja á stofuna og helminginn af holinu þannig að þetta hefur gengið nokkuð vel , svo héldum við áfram á sunnudaginn og nú á bara eftir að setja á eldhúsið - við fengum ekki nógu mikið af parketi til að klára. 

í dag fór ég með Nínu inn á akureyri til að vera barnapía meðan hún fór til læknis og er ég stoltur af því að hafa fengið að gæta Eriks Hrafns frænda míns í fyrsta skiptið - og ekki það síðasta held ég hehe! 

Svo á morgun stendur til að bruna á Seyðisfjörð með Elmari og ná í bíl sem hann og Nína systir voru að kaupa frá þýskalandi.  

Svo af útgáfumálum hjá okkur Ragga er allt í vinnslu - við erum búnir að fá 5 lög sem eru nánast klár og ég get með nokkurri vissu sagt að þessi diskur á eftir að koma á óvart, sum lögin þarna hljóma mikið betur en ég þorði að vona - ætli þetta við verðum ekki í jólaplötuflóðinu í ár Grin


Framkvæmdir í Torginu

nú eru framkvæmdir hafnar, til stendur að leggja parket á heimili mínu - ég tók vel á því í gær og fjarlægði teppið af gólfinu, ofsa duglegurSmile Vonandi kemur parketið í dag svo við getum byrjað um helgina, annars er helgin nokkuð þétt bókuð hjá mér þar sem undirritaður er að fara að spila á dansballi í kvöld á hótel KEA, og í fyrramálið ætlaði ég að keppa í golfi - lokamót klúbbsins, bændaglíman sjálf, svo verður dottið í það um kvöldið - þannig að parketlögn hefst líklega ekki fyrr en á sunnudag.

þar til næst, Sverrir 


Efstir

Loksins - ég er búinn að halda úti bloggsíðu í ein 5 ár og aldrei getað glaðst yfir því að mínir menn í Liverpool vermi toppsæti enska boltans hérna á blogginu en núna er tækifærið og  smelli ég topp 5 hérna í því tilefni.

 

1. Liverpool 4 3 1 0 11:2 10

2. Arsenal 4 3 1 0 7:3 10

3. Everton 5 3 1 1 8:5 10

4. Chelsea 5 3 1 1 7:6 10

5. Man. City 5 3 0 2 4:2 9

og taka skal fram að þessi 2 mörk sem Liverpool hafa fengið á sig komu bæði úr vítaspyrnum - það seinna úr skandalsvítinu sem Chelsea fékk og dómarinn baðst svo afsökunar á að hafa dæmt.

Sumir hafa gagnrýnt kaup á leikmönnum liðsins en frammistaða þessara manna sýnir að réttir menn hafa verið keyptir og nefni ég sérstaklega Andriy Voronin sem hefur skorað 3 mörk og Fernando Torres sem líka hefur skorað 3

það er ekkert kalt á toppnum - stefnum á að vera þar sem lengst :) 


Allt fyrir ástina, eða hvað?

Annað hvort elska þau ekki hvort annað eða minni Angalinu svona lélegt, samt er ég alveg orðlaus yfir þessu stjörnupari, þar sem allt á að vera fullkomið og ástin meiri en hjá okkur þessum venjulegu, það er sennilega ekkert þannig, stjörnunum líður held ég ekkert betur og segja ekki "ég elska þig" lengur heldur sitja og telja peningana.
mbl.is Brad og Angelina hafa aldrei sagt „ég elska þig“ við hvort annað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband