Lítum okkur nær!
Þriðjudagur, 20. febrúar 2007
Einhver olía smitast virðist smitast aftan úr Wilson Muuga og liggur lítilsháttar taumur til hafs. Svo virðist sem einhver olía komist úr skipinu á stórstraumsfjöru og er ekki útilokað að það sé orsökin fyrir olíumengun þeirri sem fundist hefur í tjörn nærri skipinu að sögn Gottskálks Friðgeirssonar hjá Umhverfisstofnum. mbl.is
Hvað með það þó smá olía fari í sjóinn, ég veit ekki betur en fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu losi úrgang - sem m.a. inniheldur olíu í niðurföll sem skolast svo út í sjó. Og hér í mínum heimabæ veit ég að bílaverkstæði eitt losar úrgang sinn í friðlandið hér, ansi smekklega gert - umhverfisráða menn sjá þetta ekki, en þeir sjá bara það sem þeir vilja sjá - smá olíuslettu við þetta blessað skip.
við ættum að líta okkur aðeins nær!
![]() |
Lítilsháttar olíutaumur aftur úr Wilson Muuga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Benitez sektar Riise??
Þriðjudagur, 20. febrúar 2007
Fyrir hvað? Að hafa verið laminn með járni númer 9?
En ef maður spáir aðeins í þessu máli, hvað fjölmiðlarnir gera sér mikinn mat úr þessu og reyna að búa til neikvætt andrúmsloft innan liðsins.
Ég sá myndir af æfingu Liverpool í gær þar sem Bellamy og Riise voru mestu mátar og hafa gleymt þessu rugli og eru farnir að spila fótbolta.
Eflaust hafa menn farið yfir strikið miðað við reglur klúbbsins og verða að taka því.
Ætti svo sem ekki að vera mikið mál fyrir þessa stráka að punga út nokkrum milljónum.
Hver man ekki eftir því í fyrra sumar þegar Ronaldo fiskaði Rooney útaf, pressan kjamsaði á því endalaust og sagði að þeir væru miklir fjandmenn og Ronaldo ætlaði að fara frá man utd, það var ekki rétt hjá þeim. Ronaldo hefur verið besti leikmaður deildarinnar það sem af er og þeir Rooney mestu mátar.
![]() |
Benítez sagður hafa sektað 15 leikmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gengur það?
Mánudagur, 19. febrúar 2007
Sænska sjónvarpið vill fá Eirík Hauksson áfram í pallborðsumræðurnar í hinum vinsæla þætti Inför E.S.C. þar sem sýnd eru myndbönd með þátttakendum í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og þau síðan rædd af fimm norrænum söngvakeppnissérfræðingum. Við viljum endilega fá hann með, það gefur þættinum bara aukið gildi að hafa einn þátttakanda með sem er jafnframt keppandi. Þetta er bara leikur og engar strangar reglur í gildi," sagði Meta Bergqvist framleiðandi þáttanna í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins.
MBL.is
ég held að Eiki muni ekki taka þátt í þættinum vegna þess að þarna er verið að gagnrýna keppendur í keppninni.
Og það getur ekki komið vel út að keppandi sé að tala um aðra sem þátt taka í júróvision og gefa þeim einkun í sjónvarpsþætti.
Og ég veit hreinlega ekki hvern við eigum að senda í stað Eiríks rauða.
![]() |
Svíar vilja fá Eirík áfram í vinsæla sjónvarpsþætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
það er ekki alveg í lagi með drenginn..
Mánudagur, 19. febrúar 2007
Hvað gerist í höfðinu á manninum?
Riise neitar að syngja í karoke og hann bregst svona við?
Held að núna sé Bellamy búinn að brenna allar brýr að baki sér hjá Liverpool, svona líða menn ekki það á bæ hugsa ég.
Og einhvernvegin efast ég um að lið standi í röðum og vilja fá þennan geðsjúkling til sín.
![]() |
Riise neitaði að syngja og Bellamy trylltist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvað fór hann á mörgum höggum?
Sunnudagur, 18. febrúar 2007
Bellamy hefur aldrei verið sá prúasti í bransanum. Og þetta kemur í sjálfu sér ekkert á óvart.
Finnst samt að þessar fréttir af mínum mönnum ekki gæfulegar svona í ljósi þess að liðið mætir Barcelona í vikuni.
Kannski er þetta eitthvað slúður - vona það bara.
![]() |
Bellamy lamdi Riise með golkylfu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Einu sinni einu sinni enn..
Laugardagur, 17. febrúar 2007
jæja þá erum við enn einu sinni búin að velja okkur lag til að fara í júróvision.
Eiki Hauks hafði það og Friðrik Ómar í öðru og svo Hafsteinn í því þriðja, ég spáði reyndar Heiðu á topp 3 en var með Eika og Frikka rétta þar.
Hvernig datt mér í hug að nefna lag Eiríks á topp 3? Einfalt mál. Konur eins og mamma mín og fleiri á hennar reki slefuðu yfir þessu lagi, sem mér fannst ekkert sérstakt, fínn kraftur í Eiríki en það vantaði eitthvað upp á þetta - kafla sem byggði þetta betur upp.
Framkoma þeirra þarna á sviðinu var til skammar, 3-4 fullorðnir menn í gítarhetju leik og allr unpluggend auðvitað - það hefði alveg mátt hafa snúrur í gítörunum svona til að þetta virkaði meira real. Svo toppaði Sveinn Rúnar höfundur lagsins allt með því að bætast í hóp gítar hetjanna - þetta var eins og 5+1 vörn í handbolta - svei mér þá.
Og þegar Eiríkur byrjaði að söngla enska textann - omg.. þvílík klisja, aumingjahrollur fór um alla í partíinu sem ég var í.
En svona fyrst búið er að kjósa þetta lag áfram vona ég innilega að það komist áfram í aðalkeppnina - þó ég sé ekki bjartsýnn á það.
![]() |
Eiríkur Hauksson verður fulltrúi Íslands í Helsinki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
júróvísíon
Laugardagur, 17. febrúar 2007
úrslitin ráðast í kvöld og spái ég þeim Heiðu,Eika Hauks og Friðriki Ómari 3 efstu sætunum - ég er þó ekki viss í hvaða röð þau verða.
læt vita af því þegar úrslitin verða ráðin
aðeins að X- factor
lélegastu þátttakandinn í þessu er dómarinn Ellý, hún er illa að máli farin og hefur ekki hundsvit á góðum söng eða lögum - senda hana næst heim, þó fyrr hefði verið.
![]() |
Úrslitin ráðast í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
ó Britney.. sköllótt ertu nú..
Laugardagur, 17. febrúar 2007
Hún er bara að mótmæla því að hún fékk ekki handtöskuna með því að láta skerða hár sitt.
En þetta með tattúin skil ég ekki alveg, það eru engin mótmæli.
Það færi sér engin heilvita maður varir á úniliðinn
![]() |
Britney snoðklippt á húðflúrsstofu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
á ég að hlæja núna?
Föstudagur, 16. febrúar 2007
Hvað heldur þetta fólk að það geti gert í þessu?
er ekki alltaf verið að blása það upp að ísland sé frjálst og fordómalaust?
Svo koma hérna nokkrir aðilar úr klámbransanum og ætla að halda fundi og skemmta sér og allt verður vitlaust. kommon - það er ekki eins og þetta fólk hafi gert eitthvað af sér, og þaðan af síður tekið það fram að eigi að mynda klám hérna - eins og það sé ekki gert hérna af okkur íslendingum - ekki er mikið kvartað yfir því.
andskotans feminista kjaftæði!!
kona sem kommentaði hérna á blogginu hjá mér, fór að blanda barnaperrum og sifjapelli í þessa umræðu og kona þessi segist vera feministi og vinstri græn (auðvitað). Efast um að hún viti hvað sifjaspell sé - miðað við hvernig hún setur þetta fram allavega.
Ég er alveg hættur að skilja þessa umræðu.
Og svo maður tali ekki um að þetta fólk sem er á leiðinni hingað kemur að fúsum og frjálsum vilja - engin neyddur til þess.
Ættum við ekki frekar að mótmæla einhverju öðru en þessu.
![]() |
Ung vinstri-græn harma að íslensk fyrirtæki taki á móti klámframleiðendum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Klám er og verður allstaðar
Föstudagur, 16. febrúar 2007
Hvað á ríkisstjórnin að gera? Banna þeim að koma hingað? Maður spyr sig.
Það ætti að vera heiður fyrir land eins og ísland að taka á móti þessum hóp og skora ég hér með á rískisstjórnina að standa heiðursvörð þegar liðið mætir.
![]() |
Stígamót skora á ráðamenn þjóðarinnar að koma í veg fyrir klámþing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)