Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

jii minn eini

feminista beljurnar höfðu það af - til hamingju!

Við vitum þá við hvaða hóp á að tala þegar þarf að mótmæla einhverju eins og t.d. of háum vöxtum og verðbólgu - svo maður tali ekki um matarverð.

Gott að eiga svona hauka í horni þegar taka þarf á málunum.

 

Og stjórnendu hótelsins eru greinilega ekki bissness menn fyrir fimmaura - enda bændur og steinhissa að fá ekki ríkisstyrk til að reka hótelið - Bændahöllina sjálfa.

Fara klámhundarnir ekki eitthvað annað þá?

Hótelið hér á Dalvík stendur alltaf tómt að ég held. Og ég er viss um að vídeokóngurinn og eigandi hótlesins tekur vel á móti kollegum sínum klámkóngunum 


mbl.is Framleiðendum klámefnis vísað frá Hótel Sögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki frétt eða hvað..?

Var þetta ekki bara flítimeðferð hjá henni svo hún geti með góðri samvisku haldið áfram að drekka og dópa.
mbl.is Britney sögð hafa staldrað stutt við á meðferðarstofnun í Malibu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

YEEEESSSS!!!!

það bjuggust ekki margir við þessu en golfæfingarnar í Portúgal skiluðu sér fullkomlega með 2Liverpool mörkum frá Craig "9iron" Bellamy og John Arne "Driver" Riise - æðislegt alveg - ég man ekkert hver skoraði fyrir Barcelona.

Það er greinilega eitthvað mikið að hjá spænska liðinu og mér sýndist Ronaldinho nánast fella tár þegar hann sá ekki fram úr því að vinna mína menn frá Bítlaborginni 


mbl.is Frækinn sigur Liverpool á Camp Nou
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið sjónvarpsgláp enn skaðlegra en áður var talið fyrir börn

En fyrir fullorðna?

 

Verður ekki búið að banna allt sem er skaðlegt fljótlega - bíla,tölvur,sjónvarp,flugvélar,reiðhjól,mat,íþróttir... já banna bara allt sem getur haft skaðleg áhrif. 


mbl.is Mikið sjónvarpsgláp enn skaðlegra en áður var talið fyrir börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ekki bara að banna tölvur?

Alveg er þetta merkilegt hvað svona getur slegið fólk - hvað eru margir sem eiga tölvur á íslandi og hafa aldrei lent í deilum vegna notkunar á þeim? 

Svo koma upp svona mál þar sem unglingar reiðast vegna þess að foreldrarnir kunna engin ráð nema að loka á nettenginguna - ég man eftir 2-3 svona fréttum. 

Væri ekki vitlegra að kenna foreldrum að umgangast börnin sín? 

Þetta er eins og þegar það eru tiltekin öll fíkniefnamál á útihátíðum, kannski 10.000 manns að skemmta sér án vandræða og svo er bara talað um þessi fimm eða tíu fíkniefnatilfelli sem upp komu.

ég held að á 99% heimila í landinu sé tölunotkun með ágætum - og óþarfi að koma með fréttir um foreldra sem ráða ekkert við börnin sín. 


mbl.is Stympingar vegna tölvunotkunar unglingspilts á höfuðborgarsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Britney flutt til íslands og farinn að..

vinna hjá ísbirninum -með Bubba og Tolla

Samt sagðist hún aldrei ætla að vinna þar, eða var það Bubbi sem sagði það?

 

Slúðurslúðurslúðurslúðurslúður......

fólk nennir að lesa svona - líka ég . 


mbl.is Britney Spears farin í meðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig í andskotanum....

                             ..geta tvær rúllandi kartöflur í bónus orðið að svona miklu umræðuefni?

 

vinsælustu bloggarar landsins koma með hverja færsluna á fætur annari og hinir minni herma eftir í veikri von um aukna heimsókn á sína blogsíðu. 


mbl.is Kartöflumús í Bónus?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takt'ana maður

það væri óskandi að Júðinn nældi í Höllu og hefði hana á brott með sér - þá kannski fengjum við betri kynni í X-Factor þar sem Halla er eins og vélmenni og virðist vera fyrirmunað að koma með eitthvað mannlegt og spennandi í kynningarnar og spurningar til dómara og keppenda. 

Svo má gaurinn taka Ellý með sér líka og láta hana vera eróbikk kennarann sinn.

skrítið að manneskja eins og Ellý sem hefur enga reynslu í tónlist - (pönk er ekki með)

Er hún ekki málari eða eitthvað. 


mbl.is The Sun fjallar um Jude og Höllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítum okkur nær!

Einhver olía smitast virðist smitast aftan úr Wilson Muuga og liggur lítilsháttar taumur til hafs. Svo virðist sem einhver olía komist úr skipinu á stórstraumsfjöru og er ekki útilokað að það sé orsökin fyrir olíumengun þeirri sem fundist hefur í tjörn nærri skipinu að sögn Gottskálks Friðgeirssonar hjá Umhverfisstofnum. mbl.is

 Hvað með það þó smá olía fari í sjóinn, ég veit ekki betur  en fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu losi úrgang - sem m.a. inniheldur olíu í niðurföll sem skolast svo út í sjó. Og hér í mínum heimabæ veit ég að bílaverkstæði eitt losar úrgang sinn í friðlandið hér, ansi smekklega gert - umhverfisráða menn sjá þetta ekki, en þeir sjá bara það sem þeir vilja sjá - smá olíuslettu við þetta blessað skip.

við ættum að líta okkur aðeins nær! 


mbl.is Lítilsháttar olíutaumur aftur úr Wilson Muuga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Benitez sektar Riise??

Fyrir hvað? Að hafa verið laminn með járni númer 9?Alonso,Riiise og Bellamy

En ef maður spáir aðeins í þessu máli, hvað fjölmiðlarnir gera sér mikinn mat úr þessu og reyna að búa til neikvætt andrúmsloft innan liðsins.

Ég sá myndir af æfingu Liverpool í gær þar sem Bellamy og Riise voru mestu mátar og hafa gleymt þessu rugli og eru farnir að spila fótbolta.

Eflaust hafa menn farið yfir strikið miðað við reglur klúbbsins og verða að taka því.

Ætti svo sem ekki að vera mikið mál fyrir þessa stráka að punga út nokkrum milljónum.

 

Hver man ekki eftir því í fyrra sumar þegar Ronaldo fiskaði Rooney útaf, pressan kjamsaði á því endalaust og sagði að þeir væru miklir fjandmenn og Ronaldo ætlaði að fara frá man utd, það var ekki rétt hjá þeim. Ronaldo hefur verið besti leikmaður deildarinnar það sem af er og þeir Rooney mestu mátar. 


mbl.is Benítez sagður hafa sektað 15 leikmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband