dálítill munur á lögum íslams og íslands

Með fullri virðingu á Íslams trú er þetta ekki aðeins of langt gengið að hengja manngreyið eftir 4 fyllerí!

Þetta er eitthvað annað en íslensk lög sem ná ekki einu sinni yfir  að refsa mönnum, undir áhrifum víns eða fíkniefna.

þeir menn sem nauðga á hrottalegan hátt  eða ganga svo illa í skrokk á fólki og ekkert alltaf  undir áhrifum fíkniefna eða víns, fá sjaldan þunga dóma fyrir það - og ef svo óheppilega vill til að dómur fellur er það það stutt að borgar sig varla að dæma í því - málið dautt og eftir sitja fórnarlömbin með nokkra þúsundkalla í miskabætur, með brotna sál og líkama.

En sökudólgurinn endurtekur leikinn aftur og aftur eins og dæmin sanna og ekkert er að gert!! 

Nei ekki á íslandi - hér þykir greinilega ekkert varið í að dæma nauðgara eða árásarmenn að neinu viti.  

 


mbl.is Dauðarefsing fyrir að drekka áfengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Ólason

Mönnum er refsað á Íslandi fyrir að vera með áfengi. Veit um einn sem var með nokkra bjóra og undir áhrifum og ónefnd lögga handtók hann og fór með á löggustöðina. Og hótaði svo að loka hann inni fyrir að ljúga til nafns. Þú lýgur ekki að lögreglunni öskraði hann. Þessi maður, þ.e. hinn handtekni drekkur ekki í dag og er mætur þjóðfélagsþegn. Þú þekkir hann vel. Hann hefur snúið við blaðinu og lætur ekki góma sig aftur.

Ragnar Ólason, 7.2.2008 kl. 10:11

2 Smámynd: Sverrir Þorleifsson

já ég man eftir þessu umrædda atviki og kannast við kauða sem laug til um nafn, batnandi mönnum er best að lifa eins og einhver sagði einhverntíman:)

Sverrir Þorleifsson, 7.2.2008 kl. 16:02

3 identicon

Vonandi er kauði ekki Ragnar Ólason...því það er algjört möst að fá sér í glas með honum á fiskidögum :)

Addi E (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband