sérdeilis frábært
Fimmtudagur, 22. maí 2008
það hafðist þó ég hafi verið neikvæður, en þannig persóna er ég bara og oftast virkar það best fyrir mig, tók samt ekki þátt í skrúðgöngu enda er það ekki minn tebolli að fara á torg og vera með læti, styð mitt fólk á minn hátt - með dassi af neikvæðni
Loksins loksins verðum við með í úrslitum og kannski að maður splæsi smá jákvæðni í þetta og trúi því að við náum frábærum árangri.
áfram ísland
Ísland áfram í Eurovision | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
jákvæður en samt ekkert mjög...
Fimmtudagur, 22. maí 2008
Jæja þá er þessi fimmtudagur upp runninn, og allt að gerast hér í júróvísíon þorpinu okkar hér á Dalvík.
Ég er samt ekkert að missa mig í þessum látum, en vona auðvitað að lagið okkar komist nú loksins áfram, það eru nú 50% líkur á því og auðvitað eru líka 50% líkur á að við komumst ekki áfram - þetta er eins og að kasta krónu 50/50 líkur, krónan gæti þess vegna svikið okkur og ég held að evran væri traustari.
Það er samt held ég ómögulegt að segja til um þetta, atkvæðin í þessum forkeppnum falla oftast furðulega - þó við séum með gott lag, þá er Evrópa með allt annan smekk fyrir lögunum í evróvision.
Já sumir geta sagt að ég sé ekki nógu jákvæður og hafi ekki trú á þessu, það má vel vera en ég breytist ekkert þó að sveitungi minn og vinur; Friðrik Ómar sé að taka þátt.
This is my life er lag sem ég mun seint setja í spilarann hjá mér og hlusta á, þannig er smekkurinn hjá mér hreinlega.
Horfi samt á þetta í kvöld og reyni að vera jákvæður og trúa því að þetta fari allt vel.
Þrjár mínútur til þess að slá í gegn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
alveg eins og það á að vera...
Þriðjudagur, 20. maí 2008
Hafa áhyggjur af vellinum í Moskvu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
öskrað er víða...
Þriðjudagur, 13. maí 2008
skárra að heyra öskrað út út en gas gas, en miðað við höfðatölu þá er þessi skjálfti í kína eins og íslendingur hefði misstígið sig mjög lítið.
en auðvitað er skelfilegt þegar svona náttúruhamfarir eiga sér stað, við erum svo varnarlaus gagnvart þeim.
Nema bandarríkjamenn
„Svo var öskrað út, út!“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Til hvers?
Þriðjudagur, 13. maí 2008
hefði blessaður maðurinn ekki frekar átt að hjóla á venjulegu hjóli úti í náttúruni heldur en að innipúkast í 8 daga á þrekhjóli?
Allavega þá er auðveldara að vera bara inni - enginn vindur eða rigning til að tefja fyrir, annars var ég að fá mér hjól og líka búinn að komast að því að formið er ekkert, nú er bara að bæta það.
Átta daga á þrekhjóli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hann er alveg eins og...
Miðvikudagur, 7. maí 2008
Myndir birtar af bankaræningja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Loksins er hægt að kaupa Snilld
Mánudagur, 5. maí 2008
Ég get tekið undir þessi orð Geirs Horde á vissan hátt en talandi um fjárfestingar, þá er kominn út diskurinn Snilld með dúettinum Heimskyr sem er skipaður mér, Sverri Þorleifssyni og Ragnari Ólasyni og erum við með mjög takmarkað upplag í sölu, og ef þú vilt tryggja þér eintak þá er um að gera að drífa sig í því, fyrstir koma fyrstir fá.
Ekki á hverjum degi sem fólk getur keypt sér Snilld, 2000 kr. stykkið.
Fólk haldi að sér höndum í fjárfestingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Trommusettið mitt
Föstudagur, 2. maí 2008
eins og margir sem þekka mig vita er ég trommuleikari og mig langaði að deila með ykkur mynd af trommusettinu mínu sem ég var að stilla upp áðan, njótið vel!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ef og hefði
Miðvikudagur, 30. apríl 2008
Já þá er tímabilinu formlega lokið hjá mínum mönnum og óska ég Chelsea til hamingju með að vera komnir í úrslitin, það bara hlaut að koma að því að þeir kæmust í gegn um undanúrslitin.
En ekki var það létt, Liverpool veittu harða keppni og hefðu átt að fá vítaspyrnu í framlengingunni en því miður var ekkert dæmt, kannski hefur dómarinn haft orð Alex Ferguson í huga þegar hann sagði að ekki ætti að dæma víti í mikilvægum leikjum þegar lítið væri eftir, og líka fannst mér uppbótartíminn heldur snauður, svo ég haldi áfram að vitna í Ferguson.
Ég nenni ekki að pirra mig á þessum úrslitum og get alveg unað Man Utd og Chelsea að komast þangað sem Liverpool kallar sitt annað heimili - um að gera að leyfa fleirum að vera með
Chelsea í úrslit í fyrsta sinn eftir 3:2 sigur á Liverpool | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimska segi ég.
Miðvikudagur, 30. apríl 2008
Hvers vegna í ósköpunum er fólk að draga þessi ferlíki á eftir sér í svona veðri!!? Eða vera með þessa hlunka í eftirdragi yfirleitt, miðað við íslenska vegakerfið þá finnst mér þetta vera hrein og klár heimska að vera með þessi hýsi aftan í öðrum hverjum bíl eltandi sólina hvert einasta sumar, vera má að það sé voðalega skemmtilegt og spennandi að spá í hvar sólin verði á morgun.
Svona hýsi sem hinn venjulegi íslendingur er með kostar örugglega yfir eina milljón, sum meira reyndar og fyrir eina milljón og rúmlega það er hægt að gista 100 sinnum á hóteli og spara bensínkostnað sem fylgir því að draga skuldahalann á eftir sér, eða fara 5-10 sinnum á sólarströnd, það er þá líklega sól þar, í stað þess að þeysast um landið í leit að henni allt sumarið.
Svo má líka vera bara heima hjá sér - sólin kemur fyrir rest
Hjólhýsi splundraðist á ferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)