Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Feministar einn og átta

 rakst á þetta í dag og gat eignlega ekki sleppt því að setja þetta hér - og vil  ég minna á að það eina sem er kvenkyns eins og er í þessu jólasveinadæmi er Grýla og á það vel við:)

 

Kennari: Jæja krakkar, eru þið ekki spennt eftir að jólasveinarnir sex og jólasveinkurnar sjö koma til byggða?

Nemandi: Ha? Meinarðu jólasveinana 13?

Kennari: Nei... feministum var ofboðið þetta karlaveldi sem voru jólin svo þær létu okkur breyta sjö af jólasveinunum í konur?

Nemandi: En... vildu jólasveinarnir það?

Kennari: Augljóslega sýnir þetta ykkur krökkunum að jólasveinarnir eru ekki til.

Nemandi: En... hvað um sakleysi okkar og leyfi til þess að vera börn og trúa á jólasveinana?

Kennari: Krakkar mínir. Þið vitið að sakleysi ykkar og leyfi til að vera börn skiptir engu máli hjá feministum. Eina sem skiptir þær máli er að breyta hlutum, breytinganna vegna, svo að þær haldi að þær hafi náð að breyta einhverju á meðan þær lifðu

Nemandi: En...

Kennari: Taktu líka eftir að meira en helmingurinn af þessum bekk eru strákar, þar á meðal þú minn kæri nemandi! Þó þið strákar séuð litlir og sætir núna þá muniði verða íslenskir karlmenn eftir nokkur ár og feministar eiga eftir að hata ykkur ósjálfrátt.

Nemandi: ...

Kennari: Jæja, að næsta máli. Jesúína átti tólf lærisveinkur og einn lærisvein.

Nemandi: Bíddu, Jesúína!?

Kennari: Feministum var ofboðið sú hugsun að hin almáttuga Guð hafi viljað son frekar en dóttur. Svo við þurftum að breyta því.

Nemandi: En lærisveinkur?

Kennari: Feministum var ofboðið sú hugsun að Jesúina hefði viljað umkringja sig ógeðslegum karlmönnum. Núna er Júdas eini karlmaðurinn.

Nemandi: Af hverju Júdas?

Kennari: Því þær breyttu boðskap sögunnar um Jesúínu frá góðvildarmerkingunni yfir í “Sjáðu hvað gerist ef þú treystir karlmanni” sögu.

Nemandi: ...

Kennari: Æji það eru að koma hlé... Krakkar munið á morgun þá munum við tala um J.F.K., Martínu Luther King og Gandý.

Nemandi: Martínu? Kennari: Já, feministum var ofboðið hve mikið af mikilmennum sögunnar væru karlmenn svo við þurftum að breyta nokkrum í konur...

Kennari: Þetta reddast. Munið svo á eftir hlé í náttúrufræði, þá munum við tala um vithönnun, eða intelligent design.

Nemandi: En... hvað um þróunarkenninguna?

Kennari: Æji, það kom í ljós að þegar við byrjuðum að láta eftir öfgahópum, þá þurftum við að láta eftir öllum öfgahópum. Þess vegna eru bara hvít börn hérna inni í dag.

Nemandi: Ég skil...

fékk þetta á síðuni sbs.is 


Kom ekki á óvart

Ekki kemur það mikið á óvart að Kínverska stúlkan hafi unnið keppnina ungfrú heimur, miðað við að kínverska þjóðin telur rétt rúman milljarð plús mínus einhverjar 200 milljónir. Og andskotinn hafi það að sé ekki ein þarna sem gæti unnið svona fegurðarsamkeppni.

Já ég sé það líka núna að hún keppti á heimavelli og hafði því gríðarmikinn stuðning.

En miðað við höfðatöluna frægu erum við íslendingar fallegastir með 3-4 miss world titla, já eða íslensku konurnar eru fallegastar!!

Ekki veit ég til að íslenskur karlmaður hafi náð á pall í fegurðarkeppni á alþjóðavísu. 


mbl.is Ungfrú Kína kjörin ungfrú heimur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband