Mótmælum flugdrekum
Mánudagur, 26. febrúar 2007
A.m.k. ellefu létu lifið á árlegri flugdrekahátíð í Pakistan og eru um 100 manns slasaðir. Yfirvöld afléttu tímabundið banni við flugdrekanotkun svo hægt væri að halda hátíðina, en um 700 manns voru handteknir meðan á hátíðarhöldunum stóð fyrir að nota víra í flugdrekasína og fyrir að skjóta af byssum, þá voru tæplega 300 byssur gerðar upptækar. mbl.is
Það er ekkert annað. Einhver er ástæðan fyrir því að flugdrekar eru bannaðir í pakistan, miðað við fjölda látinna og slasaðra mætti halda að um flug Dreka sem spúa eldi hafi verið um að ræða. Og hvað eru menn að gera með byssur á flugdrekahátíð nema þá til að skjóta bévítans drekana.
Og þá vaknar spurning.
Ef framleiðendur flugdreka ætluðu að koma til íslands og halda ráðstefnu,fund eða bara til að nota rokið til að prufa nýja gerð flugdreka, ættum við ekki að mótmæla því? Þeir eru jú stórhættulegir og ólöglegir í pakistan.
Ellefu létust á flugdrekahátíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
stórhættulegt, banna þetta
Ragnar Ólason, 26.2.2007 kl. 11:26
hahahahahahahahaha Snilld Sverrir!
Olga (IP-tala skráð) 26.2.2007 kl. 15:27
Ég fæ nú ekki séð að það sé mikil hætta á að við þurfum að taka afstöðu í þessu tilfelli...
Greta Björg Úlfsdóttir, 28.2.2007 kl. 14:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.