Eru menn orðnir vittlausir eða hvað?

Alveg er ég viss um að þessir sem grunaðir eru um þessi skemmdarverk verða yfirheyrðir og síðan sleppt.

Þeir fá líklega einhverja sekt og svo halda þeir þessu áfram, nánast viss um það.

Hvaða njálgur grípur um sig í rassinum á svona gemlingum sem segir þeim að þeir geti bara brotið og bramlað allt sem á vegi þeirra verður?

Ég veit að það eru til tölvuleikir þar sem fólk getur skemmt hitt og þetta - gera þessir drengir engan greinarmun á alvöru hlutum og tölvuleikjum?

Það ætti að taka þá og rassskella duglega, nei kannski ekki þá geta þeir kært þann sem rassskelti fyrir misnotkun kynferðislega - það er vandlifað í þessum heimi.

Fólk tekur kannski mest eftir svona skemmdarverkum, en þau eru unnin af ríkinu og sveitarfélögum um allt land  - þá alltaf talað um framkvæmdir. 


mbl.is Þrír í haldi grunaðir um skemmdarverk í Hafnarfirði í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Ólason

Frétti að barnaverndaryfirvöld væru kominn í málið. Þeim hlýtur bara að líða mjög illa drengjunum sem gerðu þetta og við vonum að þeir fái alla þá geðhjálp sem þeir geta fengið.

Ragnar Ólason, 14.2.2007 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband