Gifti sig ekki til fjár fraukan sú.

það er greinilegt að peningar skipta litlu máli í hjónabandinu, eða jú örugglega því fyrrum kona Abramovich hefur örugglega fengið einhverja aura við skilnaðinn, og hún fær kannski að velja sér einhverja leikmenn líka úr Chelsea liðinuSmile
mbl.is Abramovich skilinn við eiginkonu sína til 16 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húrra!!

Það var mikið að yfirvaldið gerir eitthvað í þessum málum, dómskerfið hérna er samt svo glata að þessir menn sem voru böstðir þarna verða að öllum líkindum komnir í sama sukkið aftur fljótlega. 

En gott hjá lögguni að ráðast til atlögu við dópheiminn og handrukkara - kominn tími til 


mbl.is Ruðst inn á harðsvíraða handrukkara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglan leysir vandann

Er þetta ekki alveg full langt gengið? Og dæmigert fyrir fólk sem býr á höfuðborgarsvæðinu þar sem hraðinn og stressið hefur öll völd og engin hefur tíma til að gera neitt.
Að kalla út lögreglu í svona tilfelli er náttúrulega lögreglumál svona eins og Einar Bárðarson segir það.
Ég hef lesið um manneklu í lögregluliði borgarinnar og skv. fréttinni var hótuninni tekið alvarlega auðvitað og menn vissu ekki hvers kyns var, og lenda svo í deilu tveggja hálvita um hvor þeirra ætti að ryksuga.
Mér skilst að sé þjónusta í boði fyrir sameignir og mæli með að íbúar sem þarna eigi í hlut kaupi slíka þjónustu, svona til að lögreglan geti sinnt sínum dagleguverkum án útkalla að þessu tagi.

mbl.is Lögregla kölluð út vegna þrifa á sameign
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á von á sex börnum með sex konum

það má segja að þessi maður hafi ekki setið auðum höndum, frjósemin bullandi og sakaður um fjárdrátt, fjár dráttGasp

Hann verður allavega að stunda meiri fjárdrátt svo hann geti borgað meðlög með þessum 6 börnum - ef þau verða ekki fleiri! 

furðulegt að svona maður lendi í þessu, svo er fólk sem reynir allt sitt líf að eignast barn en illa gengur. 


mbl.is Á von á sex börnum með sex konum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Anna ekki bara lifandi?

Það kæmi mér ekkert á óvart að hún Anna væri hreinlega bara á lífi eftir allt saman.

Kæmi bara einn daginn labbandi með arfinn sinn og vildi láta taka af sér myndir fyrir dónablöð.

Þetta mál er að verða heldur betur skrautlegt, þarna er einhver með óhreint mjöl í pokahorninu. 


mbl.is Rannsókn á dauða Önnu Nicole Smith hefur leitt „þýðingarmikil“ sönnunargögn í ljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er öll vitleysan eins...

hvernig í fjandanum getur manneskja verið týnd þegar kemur svo í ljós að hún var heima hjá sér allann tímann?

Efast um hæfni þeirra sem "leituðu" að blessaðri gömlu konuni ef þeim hefur ekki dottið í huga að kanna hvort hún væri ekki bara heima hjá sér. 

Hvenar ætli þeir hafi hætt að leita?

En mikið var það nú gott að beinagrindin af henni fannst og menn geta þá andað léttar. 


mbl.is Fannst á heimili sínu eftir að hafa verið týnd í fjögur ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

stelpan aldeilis í gírnum:)

það er ekki að spyrja að hæfni kvenmanna í að bakka.

Miklar líkur á að hún hafi ekki vitað í hvaða gír hún var blessunin, ótrúlegt að komast alla þessa leið "uppá" tréðGrin

en mildi að þær sakaði ekki við þetta óhapp 


mbl.is Bakkað yfir tré á Skólavörðustíg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hjúkk

eins gott að ég keypti mér ekki land cruiser á árunum 1996-1999  - hvernig má það vera að þessi galli finnist fyrst núna á bílum sem eru 11-8 ára?

 þessir bílakallar sko , alveg búnir að missa það


mbl.is Öxulgalli í Land Cruiser
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einmitt það sem ég bjóst við...

tilhvers þarf læknirinn að skoða tölvuna?

svona svipað og bifvélavirki verði að skoða í manni tennurnar áður en hann getur sagt til um hvað sé að bílnum. 


mbl.is Læknir vill skoða tölvu Önnu Nicole Smith
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég á ammælídag

ég á ammælí dag, ég á ammæli sjálfur, ég á ammælí dagWizard

fleiri sem eiga þennan dag er móðir mín sjálf og óska ég henni innilega til hamingju.

Addi E bekkjabróðir minn líka sem staddur er í London -til hamingju Addi minn.

Bin Laden á líka þennan dag - hef ekki hugmynd hvar hann er niður kominn.

Sharone Stone og Chuck Norris  svo einhverjir séu nefndir.

til hamingju öll 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband