Það gerðist hratt!!

Ótrúleg raunasaga Huldu Sigurðar bílstjóra.

Hún ók á gæs á mánudaginn og hún, sko gæsin (blessuð sé minning hennar) fór alla leið inn í bílinn til hennar (Huldu sko) 

Hefði Hulda kannski farið sér ögn hægar hefði þetta ekki gerst, og fréttin ekki komið í mogganum.

 

Og þá hefðum við aldrei fengið að vita af þessu.

Nú er bara að bíða og sjá hvort mogginn komi ekki með fréttir reglulega af þeim sem keyra á fugla í sumar. Það gæti verði dálkur í blaðinu við hliðina á "hverjir voru hvar" dálkinum "þessir keyrðu á fugl". 


mbl.is Fékk gæs inn um bílgluggann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valbjörn Júlíus Þorláksson

Hvaða væl er þetta?  Fólk keyrir jú á fugla reglulega en það er ekki á hverjum degi sem fuglinn ákveður að troða sér alla leið inní bílinn..  Allavega hef ég ekki séð það áður..:)

Valbjörn Júlíus Þorláksson, 30.5.2007 kl. 09:54

2 Smámynd: Sverrir Þorleifsson

Væl -  ég er ekki að væla yfir neinu, bara að benda á það að ef fuglar sem keyrt er á fara alla leið inn í bílana þá gerist það venjulega hratt og óþarfi að benda sérstaklega á það - svo held ég að konan hafi nú ekki alveg verið á löglegum hraða því svona lagað gerist ekkert á 90 km hraða-  það er ljóst

Sverrir Þorleifsson, 30.5.2007 kl. 10:13

3 identicon

Kannski var hún á 90-100 og gæsin var að fljúga á móti henni. Ekki veit ég hvað gæsir ná miklum hraða en ég er ekkert meiri eðlisfræðigúru en þú þannig að ég leyfi því bara að liggja á milli hluta.

Óþarfi að vera að hengja sig á einhverjum smáatriðum. Gæs er nú ekkert smá ferlíki og því ansi skondið ef hún nær að brjóta rúðuna og enda í framsætinu við hliðina á bílstjóranum. Ekkert að þessari frétt. Allt í lagi að brjóta þetta upp með svona fréttum af og til heldur en að vera alltaf að tala um efnahagsvanda Súdan eða eitthvað álíka alvarlegt. 

Jon Hrafn (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 11:06

4 Smámynd: Ragnar Ólason

Gæsin flýgur á rúðunni, eða er hún kannski að fljúga á auganu á mér, ætli húsið geti látið sig dreyma, ætli það fái martraðir

Ragnar Ólason, 2.6.2007 kl. 13:39

5 identicon

Tja... gæsir hafa verið mældar á allt að 127km/klst þannig að ef ein slík mætir bíl sem er á 90 km/klst ætti höggið nú að geta verið alveg þokkalegt - 217km/klst myndi nú líklega duga til að rispa framrúðuna lítillega.

Gulli (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 20:17

6 identicon

Hey, ég keyrði á gæs á Bensanum mömmu og pabba "98 og þetta var þvílíkt högg, dúndraðist á framljósið og þaðan á rúðuna og allt í klessu...það kom einmitt í DV þá hehe NOT!!!

Kata Árna! (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 15:31

7 Smámynd: Friðjón Árni Sigurvinsson

órúlegt hvað fólk gerir til að koma sér í fjölmiðlana ;) keyrandi á gæsir og allskyns fiðurfénað

Friðjón Árni Sigurvinsson, 7.6.2007 kl. 19:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband