Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

það tussaðist...

je minn eini að sjá þennan leik í gær, Liverpool með drulluna langt upp á axlir og lið Standard Liege var mun líklegra til að hafa sigur fannst mér.

Og það var maðurinn sem flestir aðdáendur liðsins þola ekki sem skoraði og það í framlengingu, Dirk Kuyt!!

Ég sá ekki fyrstu 2 leikina í deildinni en skilst að spilamennskan hafi verði sú sama og í gær. 

Auðvitað er það niðurstaðan sem skiptir máli en ekki hvernig liðið spilar, en come on! 

Mér sýnist að 20 milljón punda maðurinn Robbie Keane þurfi að sýna meira og yfirleitt allir þarna í liðinu, Pepe Reina er sá eini sem gerði eitthvað að viti, fyrir utan ofurmennið Kuyt.


mbl.is Kuyt bjargaði Liverpool á örlagastundu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

aðallega það...

það er ekkert að gerast í mínu lífi annað en ég spila golf og horfi á enska boltann.

það fer samt meiri tími í golfið en að glápa á boltann, enda er um að gera að nýta sumarið og haustið vel til golfspils og herða boltaglápið eftir það. http://img207.imageshack.us/img207/7662/picture61su2.png

 

Ása er fyrir sunnan og verður þar þangað til við förum út, ég fer svo suður akandi á sunnudaginn og á þriðjudaginn förum við til Tenerife í viku.

 

forgjöfin í golfinu hefur lækkað úr 28,1 í 26,2


Golf

Ég heiti Sverrir og er golf-fíkillGrin

 Og skammast mín ekkert fyrir það, byrjaði að stunda þessa snilldar íþrótt í fyrrasumar og fíla það í botn, búinn að vera mjög duglegur að spila í sumar og forgjöfin komin í 28,1

- ég setti mér takmark í fyrra sumar að koma forgjöfinni niður fyrir 30 á 3 árum, ég byrjaði í 36 og það er meira en að segja það að lækka sig á svona stuttum tíma, ég þekki þó nokkra sem eru enn með fulla forgjöf (36) og hafa spilað golf í 5-10 ár. 

Ég hef haft fínan meðspilara undanfarna daga og varla hægt annað en að spila vel, því
Maggi prestur hefur verið duglegur að hafa samband við mig til að spila með sér, ég er kannski meðhjálparinn hans heheLoL

Ása Björg hefur líka verið dugleg að spila og fór um helgina sem caddy á kvennamóti og stóð sig með príði.

sjálfur spilaði ég 27 holur í dag 16 með ásu og 11 með Elmari og var orðinn frekar framlágur eftir það. 

ef ég er ekki heima vitið þið hvar ég er....

 

svo ég svari nú þessu með goðsögnina sem syngur lagið með hljómsveitinni Best fyrir, uppljóstrast það hér með að maðurinn sem um var rætt er sjálfur Rúnar Júlíusson og söng hann lagið í bítið á sunnudaginn var - ferskur eftir fiskidaginn.

 


Góð helgi að baki

Jæja þá er enn einum fiskideginum lokið með miklum glæsibrag, ég upplifi þennan dag ekki eins og allir hinir því ég var að spila með 4 hljómsveitum á stóra sviðinu: Blúsbandi Hölla Vals, Hljómsveitinni Best Fyrir, Dætrum byggðarlagsins og Eyþóri Inga ásamt því að spila í beinni útsendingu á Bylgjunni með 2 síðast nefndu.

Ég smakkaði lítið af fiskinum, náði samt að fá mér smá, komst ekki í að smakka risapizzuna né að skoða neitt af því sem var í boði en ég er samt sáttur og stoltur af mínu framlagi til Fiskidagsins  og vona að það sé metið mikils, því það er ekki sjálfsagt að tónlistarfólk geri svona lagað og taki ekki krónu fyrir það!

Nú get ég líka slakað á og spilað golf næstu daga því dagarnir fyrir fiskidaginn fóru í ferð til höfuðborgarinnar og æfingar með öllum þessum hljómsveitum.

 næsti fiskidagur verður 8. ágúst 2009 - byrjaður að telja niður Smile


1. í verslunarmannahelgi

og ég vaknaður, klukkan er 06:54!

Gat bara ómögulega sofið lengur. 

Það verður gaman þessa helgi, verð að spila með Tröllaskagahraðlestinni á síldarævintýrinu á Fjallabyggð í kvöld, annað kvöld og sunnudagskvöld - á laugardagsmorgun tek ég þátt í golfmóti á Arnarholtsvelli n.t.t. Dalvíkurskjálftanum og á rástíma 10:20.

Eyþór Ingi verður með okkur á laugardagskvöld, æfðum í gær nýtt lag eftir Eyþór sem lofar góðu enda ekki við öðru að búast frá þessum eðal tónlistarmanni.

Svo á mánudagsmorgun bruna ég til Reykjavíkur, og ef einhvern vantar far er það velkomið þar sem ég verð einn á ferð, Ása mín er að fara á eftir í flug og verður í brúðkaupsveislu á morgun.

Svo eru bara 8 dagar í aðaldaginn, Fiskidaginn!! stefnir allt í það að ég verði að spila með 3 hljómsveitum á sviðinu daginn þann.

kveðja úr Loðnutorgi, gatan kemur víst til með að heita það fiskidagshelgina.

gangið hægt um gleðinnar dyr og fariði varlega elskurnar Wink


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband