HM reglur fyrir konur

HM reglur fyrir konur

TAKIÐ eftir allar konur! Það er mikilvægt fyrir ykkur að lesa áfram, það gæti bjargað hjónabandinu eða sambandi. Karlmenn í heiminum haft sett húsreglur fyrir lokakeppni HM í Þýskalandi og það er eins gott að þið farið eftir þeim.

REGLURNAR:

1. Frá 9. júní til 9. júlí 2006 skaltu fylgjast vel með fréttum hér á hmbolti.net svo þú vitir hvað er að gerast á lokakeppninni í Þýskalandi.  Þá getum við talað lítilega saman á meðan á lokakeppninni stendur þar sem ég mun ekki ræða um neitt annað en FÓTBOLTA.

2. Á meðan á lokakeppni HM stendur er sjónvarpið mitt – alltaf og án allra undantekninga.

3. Það er allt í lagi ef þú þarft að komast framhjá sjónlínu minni að sjónvarpinu svo lengi sem þú skríður eftir gólfinu og truflar mig ekki.  Ef þér skildi detta í hug að standa nakin fyrir framan sjónvarpið farðu þá strax aftur í fötin þar sem ég mun ekki hafa tíma til að fara með þig til læknis fáir þú kvef.

4. Á meðan á leik stendur verð ég heyrnalaus, mállaus og blindur  gagnvart þér – nema ef til þess kemur að ég þurfi nýjan bjór eða eitthvað að borða.

5. Það er góð hugmynd fyrir þig að hafa alltaf alla vega tvær kippur af bjór vel kældar inni í ísskáp og nóg af snakki.  Ef þú hagar þér vel fyrir framan vini mína máttu horfa á sjónvarpið frá klukkan 12 á miðnætti til 6 um morguninn ef það eru ekki neinar endursýningar á þeim tíma.

6. Ef þú sérð að ég er reiður eða pirraður þegar liðið mitt er að tapa viltu þá EKKI segja “þú jafnar þig – þetta er bara leikur” eða “ekki hafa áhyggur – þeir vinna kannski næst.”  Ef þú segir þetta verð ég bara reiðari eða pirraðari. Mundu ávallt að þú munt aldrei vita meira um fótbolta en ég og svona setningar verða bara til þess að við skiljum fyrr.

7. Þú mátt horfa á EINN leik með mér og þú mátt tala við mig í hálfleik, en bara þegar auglýsingarnar eru og bara ef staðan er góð.  Taktu líka eftir að ég sagði EINN leik, ekki reyna að nota lokakeppni HM sem einhverja hörmulega tilraun til að “eyða tíma saman”.

8. Endursýningar á mörkum eru mjög mikilvægar. Mér er alveg sama hvort ég hafi séð markið áður eða ekki, ég vil sjá það oft og mörgum sinnum í viðbót.

9. Segðu vinkonum þínum að eignast ekki börn á þessum tíma, ekki halda nein barnaafmæli eða aðrar fáránlegar veislur vegna þess að:
a) ég mun ekki mæta
b) ég mun ekki mæta og
c) ég mun ekki mæta

10. En athugaðu, ef vinur minn bíður mér í heimsókn til að horfa á leik er ég rokinn.

11. Markaþættirnir í lok dagsins eru alveg jafn mikilvægir og leikirnir sjálfir. Ekki detta í hug að láta út úr þér setningu eins og “en þú hefur séð þetta áður” eða “af hverju skiptir þú ekki um stöð?”  Lestu aftur reglu númer 2.

12. Og að lokum, sparaðu þér setningu eins og “Guðs sé lof af lokakeppni HM er bara á 4 ára fresti”. Ég heyri ekki þessa setningu enda tekur Meistaradeildin, Enski boltinn, Ítalski boltinn, Spænski boltinn  og fleira við.

Takk fyrir að virða reglurnar.

Karlmenn um heim allan!

Unnið upp úr grein úr THE SUN.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fínar ábendingar frá þér Sverrir en ég ætla að fá að ráða einn dag af þessum mánuði og það verður 10. júní.. þá útskrifast ég úr HA og aumingja Addi verður að þola það... benti honum samt á að taka með sér lítið ferðasjónvarp í Höllina meðan á útskriftinni stæði;)

Maja (IP-tala skráð) 1.5.2006 kl. 09:26

2 identicon

Hehe... Þú og Ása eruð allavega með 2 sjónvörp.. það ætti að bjálpa heilmikið... annars erum við kvennfólkið nú bara þannig að við viljum frekar vera úti og njóta sumarblíðunnar en að hanga inni yfir sjónvarpinu:)

Er það ekki?

Nína (IP-tala skráð) 4.5.2006 kl. 11:58

3 identicon

Sammála Nínu;)

Maja (IP-tala skráð) 5.5.2006 kl. 22:01

4 identicon

það er nú alveg hægt að fara aðeins út á milli leikja heh!

Sverrir (IP-tala skráð) 6.5.2006 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband