Bull eftir því sem ég best veit!!

Eftir því sem ég best veit hafa Staðarskáli og Brú verið í eigu sömu aðila í þónokkur ár og ekki verið í neinni samkeppni - tek það fram að ég er ekki 100% viss um þetta.

Brú er eiginlega bara sjoppa, ekki með mörg borð og stóla - ef það eru þá borð þar en Staðarskáli er meiri matstofa og með meiri þjónustu - þó hún sé ekki mikil. 

Og hvað er verið að blanda þessum Ingó í þetta? Hann ætti bara að taka með sér nesti  að heiman og hætta þessu væli. 

Og eins og það skipti N1 máli hvað einhver idol drengur segir, þeir hækka þá bara verðið 


mbl.is Sjoppufákeppni hræðir poppara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Mér finnst samt einhvernvegin eins og hann sé að svara ekki alveg í grautfúlustu alvöru. Annars man ég þá tíð er Staðarskáli bar fram fínan mat og þjónustan var með ágætum. Langt síðan það var.

Ingvar Valgeirsson, 29.8.2007 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband