Áfram?

fékk vinsamlega ábendingu um að kannski væri vit að halda áfram að pára eitthvað hér inn, ég taldi bloggið dautt með tilkomu hins tilkomumikla Facebook - kannski var það ekki rétt, sjáum til

í hvað mörgum höggum?

ekki mundi ég berja neinn með golfkylfu, ég kýs að nota hnefana.
mbl.is Réðust á menn með golfkylfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEI hvað gerum við þá...

er ekki alveg eins hægt að taka okkur öll af lífi? Þetta er skelfilegt, veit einhver hvernig staðan á mars og twix er?
mbl.is Prins Polo á þrotum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

allir í austur!!

þarf einmitt að taka bensín, renni bara til asíu og fylli á tankinn.
mbl.is Olíuverð stöðugt í Asíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kominn heim og á lífi...

langt síðan ég hef komið með eitthvað hér og var síðasta færsla sett inn frá Tenerife - við vorum þar einmitt í byrjun september.

Allt gott að frétta, golfvertíðinni að ljúka því miður, og verð ég að bíða í langan tíma eftir að komast aftur á völlinn minn góða í svarfaðardal, kannski að maður skreppi til englands í golf fyrst pundið er á svona helvíti góðu verði, 199 kr. í dag þegar þetta er skrifað.

svona er þetta bara, en það er stutt til jóla!


á spáner gott ad djammog djúsa diskótekunum á hey,,,,

hédan frá spáni er allt gott ad frétta, sólin skýn og allt er dásamlegt- erum á internetcafé og kosta 30 min eina evru og tíminn er ad verda búinn bless

 

Herra og frú Thorleifsson


það tussaðist...

je minn eini að sjá þennan leik í gær, Liverpool með drulluna langt upp á axlir og lið Standard Liege var mun líklegra til að hafa sigur fannst mér.

Og það var maðurinn sem flestir aðdáendur liðsins þola ekki sem skoraði og það í framlengingu, Dirk Kuyt!!

Ég sá ekki fyrstu 2 leikina í deildinni en skilst að spilamennskan hafi verði sú sama og í gær. 

Auðvitað er það niðurstaðan sem skiptir máli en ekki hvernig liðið spilar, en come on! 

Mér sýnist að 20 milljón punda maðurinn Robbie Keane þurfi að sýna meira og yfirleitt allir þarna í liðinu, Pepe Reina er sá eini sem gerði eitthvað að viti, fyrir utan ofurmennið Kuyt.


mbl.is Kuyt bjargaði Liverpool á örlagastundu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

aðallega það...

það er ekkert að gerast í mínu lífi annað en ég spila golf og horfi á enska boltann.

það fer samt meiri tími í golfið en að glápa á boltann, enda er um að gera að nýta sumarið og haustið vel til golfspils og herða boltaglápið eftir það. http://img207.imageshack.us/img207/7662/picture61su2.png

 

Ása er fyrir sunnan og verður þar þangað til við förum út, ég fer svo suður akandi á sunnudaginn og á þriðjudaginn förum við til Tenerife í viku.

 

forgjöfin í golfinu hefur lækkað úr 28,1 í 26,2


Golf

Ég heiti Sverrir og er golf-fíkillGrin

 Og skammast mín ekkert fyrir það, byrjaði að stunda þessa snilldar íþrótt í fyrrasumar og fíla það í botn, búinn að vera mjög duglegur að spila í sumar og forgjöfin komin í 28,1

- ég setti mér takmark í fyrra sumar að koma forgjöfinni niður fyrir 30 á 3 árum, ég byrjaði í 36 og það er meira en að segja það að lækka sig á svona stuttum tíma, ég þekki þó nokkra sem eru enn með fulla forgjöf (36) og hafa spilað golf í 5-10 ár. 

Ég hef haft fínan meðspilara undanfarna daga og varla hægt annað en að spila vel, því
Maggi prestur hefur verið duglegur að hafa samband við mig til að spila með sér, ég er kannski meðhjálparinn hans heheLoL

Ása Björg hefur líka verið dugleg að spila og fór um helgina sem caddy á kvennamóti og stóð sig með príði.

sjálfur spilaði ég 27 holur í dag 16 með ásu og 11 með Elmari og var orðinn frekar framlágur eftir það. 

ef ég er ekki heima vitið þið hvar ég er....

 

svo ég svari nú þessu með goðsögnina sem syngur lagið með hljómsveitinni Best fyrir, uppljóstrast það hér með að maðurinn sem um var rætt er sjálfur Rúnar Júlíusson og söng hann lagið í bítið á sunnudaginn var - ferskur eftir fiskidaginn.

 


Góð helgi að baki

Jæja þá er enn einum fiskideginum lokið með miklum glæsibrag, ég upplifi þennan dag ekki eins og allir hinir því ég var að spila með 4 hljómsveitum á stóra sviðinu: Blúsbandi Hölla Vals, Hljómsveitinni Best Fyrir, Dætrum byggðarlagsins og Eyþóri Inga ásamt því að spila í beinni útsendingu á Bylgjunni með 2 síðast nefndu.

Ég smakkaði lítið af fiskinum, náði samt að fá mér smá, komst ekki í að smakka risapizzuna né að skoða neitt af því sem var í boði en ég er samt sáttur og stoltur af mínu framlagi til Fiskidagsins  og vona að það sé metið mikils, því það er ekki sjálfsagt að tónlistarfólk geri svona lagað og taki ekki krónu fyrir það!

Nú get ég líka slakað á og spilað golf næstu daga því dagarnir fyrir fiskidaginn fóru í ferð til höfuðborgarinnar og æfingar með öllum þessum hljómsveitum.

 næsti fiskidagur verður 8. ágúst 2009 - byrjaður að telja niður Smile


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband